Vélstýringarkerfi
Gröfukerfi
3D vélstýring sem sýnir stjórnandanum nákvæma stöðu skóflunnar gagnvart hönnun — hæð, halli og fjarlægð í rauntíma.
Gröfukerfið les hönnunina beint úr verkefnisgögnunum og sýnir stjórnandanum hvar skóflan er gagnvart réttri hæð. Stjórnandinn grefur eftir skjánum, ekki eftir hælum, og losnar við að bíða á mælingu áður en næsta lag er tekið.
Kerfið vinnur með halla- og snúningsnemum á bómu, stöng og skóflu og með GNSS-loftnetum á yfirvagni. Það má færa milli véla og uppfæra með nýjum hönnunargögnum á verkstað.
Nákvæmni
±10 mm með VRS
Vélgerðir
Beltagröfur, hjólagröfur
Uppsetning
Innifalin
Helstu eiginleikar
- Rauntímahæð og halli á skjá í stjórnhúsi
- Les hönnun úr DWG, LandXML og TXT
- Sjálfvirk skráning á unnu magni
- Vinnur með VRS-neti eða eigin grunnstöð
- Þolir íslenskt vinnuumhverfi — IP67 nemar
- Færanlegt milli véla
Nánari upplýsingar
- Nákvæmni (lárétt)
- ±10 mm
- Nákvæmni (hæð)
- ±15 mm
- Nemar
- Halli á bómu, stöng, skóflu
- Skjár
- 10" fjölnota, dagsljósskjár
- Gagnasnið
- LandXML, DWG, TXT
- Rafmagn
- 12/24 V
Viltu vita meira um Gröfukerfi?
Fyrirspurnin fer beint til okkar með upplýsingum um vöruna sem þú ert að skoða.
