Þjónusta
Góður búnaður krefst þekkingar, réttrar uppsetningar og aðstoðar þegar á þarf að halda. Við fylgjum tækjunum eftir frá ráðgjöf til daglegs reksturs.
Ráðgjöf
Við förum yfir verkefnið með þér — umfang, aðstæður, kröfur um nákvæmni og hvaða gögn þarf að skila — og bendum á búnað sem gengur upp í raunveruleikanum.
Uppsetning
Kerfin eru sett upp í vélina eða tækið, tengd og prófuð á staðnum. Við skilum ekki verki nema það vinni eins og það á að vinna.
Stillingar og kvörðun
Kvörðun á nemum, hæðarviðmiðum og hönnunargögnum svo tölurnar á skjánum séu þær sömu og í mælingunni.
Þjálfun
Þjálfun fyrir vélstjóra og mælingafólk í eigin vél og á eigin verkstað. Stutt, hagnýtt og á íslensku.
Viðhald og þjónusta
Reglubundið eftirlit, kvörðun og varahlutir. Við eigum til það sem oftast þarf og komum á staðinn þegar verkið má ekki stoppa.
Tæknileg aðstoð
Aðstoð í síma eða fjartengingu á virkum dögum — hönnunargögn, uppsetning, tengingar við VRS-netið og villuleit.
